Boð um sýningu ECWS 2026 í Gdansk, Póllandi
Umsóknarfrestur til 22. febrúar 2026

Svensk
English
Suomeksi

NAS tekur reglulega þátt í ýmsum alþjóðlegum samsýningum. ECWS (Evrópusamband evrópskra vatnslitafélaga) sem eru regnhlífarsamtök nokkurra evrópskra vatnslitafélaga. Þessi félög bera sameiginlega ábyrgð á að skipuleggja árlegar sýningar með tilheyrandi málþingum. NAS hefur verið þátttakandi í ECWS síðan árið 2000.

Við í stjórn NAS bjóðum öllum meðlimum okkar velkomna til að sækja um sýningu ECWS 2026 í Gdansk dagana 10.–30. september 2026 með málþingi dagana 7.–13. september. Þú sækir um með því að greiða skráningargjaldið og senda stafræna mynd í jpg-sniði (1–2 Mb) af verkinu þínu á jurynasecws@gmail.com fyrir 22. febrúar 2026.

Skráningargjald:
/350NOK/330SEK/225DKK/4370ISK, sem greiða skal inn á reikning viðkomandi lands hjá NAS, Island: Landsbanki Íslands 0123-15-112378, kt. 030144-7599, ásamt skilaboðunum „ECWS + NAS- fékags-númeri þínu“.

Dómnefnd, sem samanstendur af fulltrúum landanna í stjórninni, mun velja samtals 40 myndir/þátttakendur sem munu verða fulltrúar NAS í Gdansk árið 2026. Þetta er metfjöldi og við vonumst teftir því að þetta veki mikinn áhuga á þátttöku.

Allar mögulegar breytingar og eða viðbætur við reglurnar verða birtar í blaði okkar Akvarellen 1/2026.

En til að gefa þér meiri tíma, kynnum við þér leiðbeiningarnar núna, svo þú getir byrjað að mála strax!

Pappírsformatið hefur verið ákveðið, heil örk (56×76 cm) eða hálf örk (56×38 cm) í láréttu eða lóðréttu sniði, með fyrirvara um 3 cm minna passe-partout, karton.

Myndefnið er frjálst. Verkið verður að vera frumsamið og ekki hafa verið sýnt áður á ECWS viðburðum. Umsækjendur fá sent persónulega mat dómnefndar í tölvupósti í 11. viku. Þeir sem verða samþykktir fá einnig að taka þátt í fyrirhugaðri framhaldssýningu í Svíþjóð haustið 2026, og verða nánari upplýsingar um hana tilkynntar þeim sem valdir eru.

Áætlaður kostnaður við þátttöku í Gdansk er 100 evrur eða 14.900 ískr (gldskrá 28.11. ´25) auk póstburðarkostnaðar. Ráðstefnugjald er áætlað að vera 170 evrur. 25,330 ískr (gldskrá 28.11. ´25) Við munum fjalla um dagskrána í Gdansk síðar. Sjá leiðbeiningar einnig á finnsku og íslensku á www.akvarellen.org.

Tengiliður:
Þú getur sent frekari spurninga eða haft samband við Benitu Suomi, stjórnarmanni NAS ECWS, í gegnum, benita.suomi@live.fi eðasíma +358 40 900.